<$BlogRSDUrl$>

Raggi hinn Griski

Heimasida um ferd mina til Grikklands sumarid 2003

þriðjudagur, júlí 15, 2003

Vá! Yndisleg helgi að baki!
Santorini er fallegasta eyja í heiminum án nokkurs vafa, og ég er þreyttari en fjandinn! :)
En við skulum taka þetta allt saman í tímaröð. Ég vara þig lesandi góður við því ég hef frá ansi miklu að segja.
� miðvikudaginn seinasta var haldið partí handa Bjoern á Areios Pagos en var þetta fyrsta kveðjupartíið í röð margra á næstu dögum. Bjoern var ansi kátur og skemmtu allir sér vel þrátt fyrir að Bjoern væri að fara frá okkur. Var Team Asshole ljósmyndað í bak og fyrir á seinasta degi okkar en til frekari útskýringar þá er Team Asshole við 4 sem fórum til Santorini saman í júní, en nafnið kemur útfrá spili sem við spiluðum óhemjumikið fyrstu vikurnar í Aþenu, Asshole. Eftir að Bjoern var orðinn óviðræðuhæfur sökum ölvunar fórum ég, Nikos, Steven frá Möltu, Giorgos(iaeste) og Kristina í ansi magnaðan bíltúr um hverfi með ansi óvenjulegan atvinnuveg að mata flestra íslendinga að ég held. Sigrou avenue inniheldur nefnilega Grískar trönsur sem selja sig víst ansi ódýrt! :)
Þarna eltum við um 4 bíla sem allir innhéldu einn aðila með ákveðið takmar í huga, ojjj!!!! Ég veit ekki, það er bara eitthvað við karlmenn með brjóst í kvenmannsfötum sem höfðar ekkert til mín! ;)
Við héldum svo eftir þennan viðbjóð á grískan matsölustað sem er opinn allan sólarhringinn og þar smakkaði ég Pastitsio í fyrsta skiptið, mjög góður réttur skal ég segja ykkur, gerður úr makkrónum og e-u sósugumsi! :) En að borða á þessum tíma, 2-3 leytið, á veitingastað er skrambi skrítið!
Nú...á fimmtudeginum var svo partí hjá Ali og Mikhael vegna þess að Ali, Juka og ég vorum að flytja út af Omega. Ég var ekki í drykkjustuði svo að við fórum í Thissio hverfið við hlið Akropólis og fengum okkur frapé, ég, Nikos, o.fl. Eftir þetta kíktum við í partíið hjá strákunum en þar sátu þeir að sumbli á Vodka. Allveg hreint magnað hvað Ali litli er orðinn mikil bytta miðað við hvenær hann byrjaði! ;) Endaði kvöldið svo á Mavili en ég var farinn að sakna torgsins míns!
Að föstudegi.... Ég þakkaði guði fyrir að ég drakk lítið kvöldið á undan þegar Panos kom með þetta fína verkefni fyrir mig í samb. við ljósauppsetningu á Patras leikvanginum í Patras. Svo ég hafði nóg að gera í vinnunni og því bloggaði ég ekki þann daginn. Aftur á móti kom Manolis okkur öllum í þvílíkt gott skap með því að mæta upp úr hádegi með ekta homemade mat og vín frá Iraklio, Krít, en hann er þaðan. Rakí var drukkið og borðaðar Kaltsouni smákökur, ótrúlega góðar. Katsouni eru gerðar úr smjördegi og blöndu af mjólk og osti!! MMMmmmmm!!!!!
Já og þar sem að Rakí er þræláfengt (30 - 70 %) urðu allir rallhálfir í vinnunni og lamaðist skrifstofan nokkurn veginn í 2-3 tíma :)
En við lögðum svo af stað til Santorini á föstudagskvöldinu og eyddum nóttinni í bátnum. Þar sem að við tókum ódýra ferju tók ferðin 10 klst en sem betur fer náði ég að sofa nokkuð vel á gólfinu!:)
Ég saknaði þess dáldið að hafa ekki getað farið í siglingu um eldfjallið í Santorini í fyrra skiptið mitt þar, svo að ég ákvað að fara í þetta skiptið. Planið var að fara á rauðu ströndina í Akrotiri en ég vildi fara á eldfjallið. Ég var greinilega ekki sá eini um þá skoðun því að þessi hugmynd mín dró 24 með í förina. Við sigldum um fjallið, löbbuðum á því þar sem er yndislegt útsýni yfir Santorini ásamt því að synda í grísku útgáfunni af bláa lóninu. Gríska útgáfan er reyndar rústrauð og hvíta drullan er leðja! ;) Um kvöldið héldum við svo partí á hótelinu ásamt því að skoða næturlíf Fira, yndislegasta bæjar Aegean hafsins!
� sunnudag ákvað ég að njóta dagsins í góðum Halara fílíng! Við byrjuðum daginn á kaffi í miðju Caldera sem er útsýnisperla Fira með Æðislegu útsýni yfir hálfbogalaga fjallbæinn góða. Eftir það héldum við á Perissa ströndina, þar sem við strákarnir höfðum dvalið áður, og syntum í sjónum ásamt þess að njóta góðs matar á Taverna við sjóinn! MMmmmmmm Ein besta grísakóteletta í heimi!! Raðfullnæging eins og Nikos orðaði það!
Eftir þessa afslöppun héldum við svo til að sjá sólarlagið í Oia(Ia) og aftur fundum við kaffihús með frábært útsýni yfir bæinn og ris tunglsins! Nú var haldið til Fira og haldið á skemmtistaði bæjarins! :)
� gær fórum við svo á Kamari ströndina í sundsprett, smá sólarlegu og í yndislega gríska matargerð á El Greco Taverna! Mæli með henni, ódýr og brilla matur! :)
Bátsferðin átti sér svo stað í gærnótt og má með góðu segja að ég sé ansi þreyttur eftir hana þar sem ég svaf einungis í 2 tíma! Kvaddi svo Karin okkar með trega í morgun. Það tók mjög á Ögu að hún sé farin þar sem þær urðu mjög nánar vinkonur en við ætlum að reyna að hressa hana við í kvöld á e-n hátt þar sem í kvöld er svo kveðjupartí fyrir Filip á Mavili! Mjög GOTT!
En ég læt þetta duga í bili!
Þýðing dagsins:
Porta = hurð (door)
savourogamis = rusldráttur :) (garbage-fuck) Þeir segja þetta um jahhh...lélegt kynlíf :)
ilio vasilema = sólarlag (sunset)
ilios = sólin
astro = stjarna (star) veit að þetta er svo sem common-knowledge! :)
posted by Ragnar  # 4:55 f.h.

miðvikudagur, júlí 09, 2003

Ég steingleymdi því að allveg að sýna ykkur nýjustu myndirnar á IAESTE Grikkland heimasíðunni!
Hérna eru þær:
Myndir frá seinustu vikum
posted by Ragnar  # 5:05 f.h.
Jæja, erfið vika í gangi þessa dagana!
� mánudaginn átti Juka frá Brasilíu afmæli svo að það var haldið upp á það með partíi! Við keyptum risastóra vatnsmelónu og settum 24 kerti á hana. Juka hélt því nefnilega fram í Kalamata að hann væri konungur melónanna! Við gáfum honum einnig bol með afmæliskveðjum frá okkur flestum. Juka var alger höfðingi og bauð upp á slatta af kalimucho, bjór og freyðivíni svo að allir skemmtu sér konunglega á fyrstu hæðinni á Omega hótelinu. Hitastigið þarna var e-ð vel yfir 40 gráður svo þetta var þetta fína gufubað! :) Við héldum svo á Mavili eftir að við höfðum fengið nóg af hitanum og dvöldum þar til 5 um morguninn! ;)
Gærdagurinn var frekar erfiður í vinnunni enda Ragginn ansi þreyttur en maður harkaði þetta af sér og héldum við svo öll kl. 9 í innflutningspartí til Gerard og Lukas! Þeir eru nýfluttir í íbúð sem er staðsett nærri Solomou hótelinu svo þeir hafa það ansi gott með eldhús, svalir og alle græjer! Eftir að hafa verið í partíinu í um 2 tíma fórum við svo á Ostria café þar sem Niko beið okkar vegna yfirvofandi ferðar til Santorini um næstu helgi. Ég ætla að fara aftur og sjá það sem ég missti af ásamt því að eyða seinustu helginni með Karin því hún fer á þri. Einnig eru ALLIR að fara til SanTorini svo að ég myndi ekki hafa neitt að gera í Aþenu! :) Ég var dálítið þreyttur svo að ég fór tiltölulega snemma heim frá Ostria eða um 2 leytið, en heyrði hins vegar áðan að nokkrir hefðu farið til Mavili og verið þar fram undir morgun! :)
� kvöld er svo kveðjupartí fyrir Bjoern en hann yfirgefur okkur á morgun! Það verður haldið á Areios Pagos en ég ætla að taka því rólega í kvöld að ég held! :p Allt of mikið djamm á þessu liði hérna! :)

posted by Ragnar  # 4:39 f.h.

mánudagur, júlí 07, 2003

Jæja, þá eru það atburðir helgarinnar!
Eins og frá var sagt á fös þá var haldið til borgarinnar(bæjarins) Kalamata við Peleponese skagann.
Við lögðum af stað kl. 6 á föstudagskvöldið og vorum kominn inn á hótelið kl. 12. Þá var haldið á næsta bar sem var við ströndina rétt hjá hótelinu okkar, sem var staðsett í Akrogiali sem er 12 km utan við Kalamata. Það var algert logn og því ákváðum við að fá okkur smá sundsprett svona í tilefni af því að við höfðum eytt 6 tímum í rútu. Þvílík snilld að geta synt í hafinu kl 2 að nóttu til!!!! Ég held að ég hafi aldrei á ævi minni séð jafn margar stjörnur á himninum og þessa nótt, alger snilld. Grikkina vantar bara Norðuljósin. Þeir halda actually að þau séu ekki til, að the northern lights sé bara þjóðsaga! ;)
Eftir að hafa eytt nóttinni í sjónum og í góðu spjalli fram á morgun á hótelinu var liðið rifið upp kl 9:30 þar sem haldið var til Thiros þar sem skoða átti Vlichada helli. Ferðin átti, skv heimamönnum, að taka klst en tók okkur 2 og hálfan tíma. Við hefðum að ég held þurft fljúgandi rútu til að ná þessum tíma! ;) En við héldum svo í hellinn en þar sem að hann liggur í yfirborði hafsins þurfti að sigla í gegnum hann. Hellirinn var fundinn um 1900 en var ekki skoðaður af neinu viti fyrr en 1949. Lengd bátsferðarinnar var 1400 metrar og þvílíkur hellir!!!! Ég var ásamt öllum hinum agndofa yfir stærðinni og því sem þarna blasti við manni. Eina sem fór dálítið í mann var eyðilegginingin á steinkertunum sem lágu úr loftinu, en þeir þurftu að brjóta slatta af þeim svo að ferðamenn eins og við gætum athafnað okkur þarna. :( En þið fáið að sjá myndir þegar ég kem heim svo...
Eftir að hafa notið þess í 12-15 stiga heitum hellinum (góður hiti) fórum við svo á ströndina til að kæla okkur frekar niður. Þegar allir höfðu brennt sig nógu mikið á sólinni héldum við aftur á hótlið og lögðu flestir sig áður en átök næturlífsins hófust. Það var nokkuð fyndið að sjá Bjoern áður en hann vaknaði því hann faðmaði koddann sinn ákaft og var það því nokkuð greinilegt að hann saknar kærustunnar sinnar mikið. Hann er reyndar að hverfa frá okkur, fer aftur til Þýskalands á fimmtudag. Þannig að það verður kveðjupartí á miðvikudag. Það fyrsta þetta árið. Það verður reyndar mikið um brottfarir á næstunni og þá sérstaklega þegar ég fer. 23-25. júlí fara að ég held 5 manns frá Aþenu, þar með talið Niko.
En aftur að Kalamata, við fórum svo út á lífið og heppnin fylgdi okkur því mér tókst að ná ansi góðum díl við dyravörðin á einum af klúbbunum þarna. En við fengum að borga 5 evrur í stað 7 og fengum fría drykki heillengi frá barnum. Flestir actually keyptu ekki neitt á barnum vegna þessa! :) Snilldar klúbbur!
� sunnudeginum fengum við að sofa til 11 en þá héldum við til Methoni kastalans í Methoni. Risastór kastali frá miðöldum, byggður til varnar gegn árása sjóræningja! Og ég mun sýna ykkur myndirnar :) Við fórum svo í smástund á ströndina og kældum okkur niður en það var nokkur gola svo hafið var mjög svalandi!! :) MJÖG GoTT!!
Nú tók við viðbjóðsleg 6 tíma rútuferð til Aþenu, þar af 2 tímar seinustu 50 km vegna umferðaröngþveitis. Þið getið rétt ímyndað ykkur ástandið á liðinu eftir helgina, meðalsvefn c.a. 4-5 tímar í heildina! :)
En í dag hef ég haft ekkert að gera, því miður en Panos sagði mér að ég fengi verkefni á morgun svo...
Þakka fyrir lesturinn
mini-Þýðing dagsins:
Trapesa = Banki
Mythos = þjóðsaga (Mythos er grískur bjór) :)
posted by Ragnar  # 6:31 f.h.
Ég er í smá vandræðum í dag. Fyrstu dagana mína í vinnu hjá Elxis var ég spurður um uppskrift að e-m týpískum íslenskum mat. Málið er það að ég hef ekki hugmynd um hvað það getur verið!???? Svo...ég bið alla þá sem geta aðstoðað mig í að koma e-i góðri uppskrift í hendurnar á samstarfsfólki mínu um að senda mér tölvupóst á rfm@simnet.is Takk fyrir
posted by Ragnar  # 2:02 f.h.
�ður en að ég fjalla um atburði helgarinnar vil ég fá að koma á framfæri smá leiðréttingu á frétt frá mbl.is í dag.
Það er ekki 40° stiga hiti í Aþenu og hefur ekki verið í allt sumar! MBL lýgur! :)
� dag er varla 30 stiga hiti ;) MJÖG gott!
En meira síðar....
posted by Ragnar  # 12:12 f.h.

föstudagur, júlí 04, 2003

Jamm og Jæja. Ragginn lifir og enn á ný hef ég ferskar upplýsingar um mín sískemmtilegu Grísku ævintýri.
� gær ákvað ég að taka mér frídag í vinnunni til að fara með Ali, Bjoern og Filip til Meteora sem er talinn með fallegri stöðum í Grikklandi. Ykkur þarna heima bendi ég ykkur á að skoða eftirfarandi til frekari fróðleiks: meteora-greece og myndir.
Anyway þá lögðum við upp í þessa ferð kl. 6 frá hótelinu okkar en því miður komum við of seint fyrir fyrstu rútuna sem lagði af stað kl. 7. Málið var að allri miðarnir voru uppseldir þegar við komum, svo að við þurftum að bíða í klst eftir næstu rútu. Nú tók við 5 og hálfur tími í rútu til Kalampaka (mp = b í grísku) en sá bær er við upptök Meteora. Þar tók á móti okkur þessi yndilslegi 42° hiti og ég dó næstum... ;) Okkur var ráðlagt að taka leigubíl til The Great Meteoran sem er stærsta klaustrið í Meteora. Það mikilfenglegasta við Meteora eru klaustrin 7 sem eru á toppi fjallanna, byggð á 11. öld. Það er hreint ótrúlegt hvernig þeim datt í hug að byggja þessi klaustur þarna því þetta er ansi bratt, en okkur var sagt að þetta hefði verið leið til að forðast árásir tyrkja! :) (við gerðum létt grín að filip okkar við þetta tækifæri)... að sjálfsögðu. tyrkjadjöfull! ;)
Við borguðum aðgangseyri í The Great Metoran en það er magnað klaustur. Myndir á öllum veggjum og andinn þarna inni er hreint ólýsanlegur. Byggt í byrjun 11. aldar og lang best farna klaustrið af þeim öllum. Inni í þessum klaustrum er bannað að klæðast stuttbuxum svo að Bjoern þurfti að fara í hreint fáranlegar buxur til að vera löglegur þarna inni. mjög fyndið! :) Það sem mér þótti reyndar hvað magnaðast við klaustrið var að inni í kapellunni þeirra voru myndir af hinum og þessum munkum og þeir voru allir málaðir með hnúða á enninu í formi heila. Að því að get best ímyndað mér var þetta gert til að láta þá virðast meiri spekinga, en dæmi hver eins og hann vill.
Eftir að hafa dáðst að þessu fallega klaustri í um klukkustund fórum við svo labbandi í hin klaustrin, eitt á fætur öðru. Þetta var ansi mikið labb og ég er ekki frá því að ég hafi gengið upp svona 1000 þrep í gær ;) En eins og þið sjáið á myndunum eru klaustrin ekki það eina þarna því landslagið þarna er hreint ólýsanlegt. Um 7 leytið tókum við svo rútuna aftur til Aþenu en vorum bara 4 og hálfan tíma á leiðinni til baka því þessi rúta virkaði! :) Hin var alltaf að drepa á sér af e-i ástæðu!??
Þegar við svo komum aftur til Aþenu tókum við leigubíl á Omonia torg sem er nærri hótelinu, en við kynntumst í enn eitt skiptið hve óheiðarlegir leigubílstjórar í Aþenu eru. Við vissum að leigubíllinn myndi ekki kosta okkur meira en 5 evrur í heildina en þegar við spurðum gæjann talaði hann um 8-9 evrur. Við tókum samt bílinn og tókum strax eftir því að hann kveikti ekki á mælinum og bentum við honum á þetta en hann þóttist ekki skilja okkur. ;) Þegar við svo komum á Omonia heimtaði hann 10 evrur fyrir þessa 4 evru ferð! Ég mótmælti og gæinn varð allveg trítilóður!!! Byrjaði að keyra frá torginu og alles. Við enduðum á því að borga honum 7 evrur en hann blótaði okkur í sand og ösku eftir á ! malaka, malakas !!!!
Þetta er ansi algent í Aþenu, Diago frá Portúgal lenti meira að segja í því að þurfa að borga 15 evrur fyrir ferðina frá Syntagma til Solomou hótelsins sem kostar ekki meira en 2 evrur. Tekur um 20 mín að labba!
So...ráð frá Ragganum, leigubílar eru ódýrir í Aþenu en...passið upp á að bílstjórinn kveiki á mælinum!!!! Það eru engin föst verð hér nema kannski á flugvöllinn!
Nú er ég að fara til Kalamata sem er við Peleponese skagann og kem ég til með að segja frá öllu í fersku bloggi á mánudag! :)
Ég bið því alla vel að lifa á �slandi, sem og í Danmörku :)
posted by Ragnar  # 5:51 f.h.

þriðjudagur, júlí 01, 2003

Jæja, ég er ekki dáinn! :)
Það er nú ekki búið að gerast oft að ég bloggi ekkert á föstudegi né mánudegi en svona er þetta þegar maður hefur nóg að gera!
En það er búið að vera þó nokkuð að gera hjá mér upp á síðkastið en ég hef verið að teikna raflagnir fyrir IBC á Olympíuleikvanginum. En að helginni...
� föstudag var ákveðið að halda smá partí á Omega hótelinu og drekka kalimucho, sem er blanda af rauðvíni og kóki. Allir mættu og skemmtum við okkur þó nokkuð vel þar til haldið var á skemmtistaði Aþenu. Ég og nokkrir aðrir nenntum ekki að fara að klúbbast og borga formúgu inn ásamt helmingi hærra verði fyrir bjórinn svo við fórum á snilldar rokk-alternative stað (Stand) sem er í Exharchia hverfinu, ekki fjarri hótelunum okkar. Þarna eyddum við dágóðum tíma þar til við héldum á uppáhaldstorgið mitt Mavili! :) Þetta torg er alger snilld, það er alltaf fullt af ungu fólki þarna, sitjandi á grasinu og andinn er snilld. Best geymda leyndarmálið Aþenu!!! :) Nei ég segi svona...
Eftir um 3 tíma svefn var maður svo vakinn og við fórum á strönd sem er í rúml. klst fjarlægð frá Aþenu, Saravida. Því fjær sem maður fer frá Aþenu því betra hvað varðar hreinleika á sjónum og því var þessi strönd mjög notaleg. Vatnið var ábyggilega svona 33 gráðu heitt ef ekki meira, alger snilld!!!! � eyjunum er nefnilega mun svalara og því eru fyrstu 10 skrefin oft ansi erfið!! :) Eftir ströndina fórum við svo með rútu til baka og lentum í umferðaröngþveiti sem gerði ferðina til baka mjög langa (3 tímar ca.). En þegar við komum svo loksins var haldið á veitingastað ásamt öllum hinum og borðuðum við grískan mat þar til enginn gat hreyft sig!!!! Mögnuð matargerð hérna, allt gert með feta og ólífum og slíku...snilld! Við rónarnir fórum svo eftir matinn á Mavili en við gátum ekki verið neitt of lengi þar sem planið var að taka bát frá Piraeas kl. 8:45 morguninn eftir á eyjuna Egina sem er í klst. fjarlægð frá Aþenu. Restin af liðinu fór svo á e-n hræðilegan klúbb þar sem voru einungis örfáir túristar og skemmti liðið sér víst frekar takmarkað!!! Mavili er best! :)
En eins og glöggir lesendur geta getið sér til þá var þessi helgi ekki sú dýrasta hingað til!
Upp rann svo sunnudagur og mættu allir hálf ónýtir á höfnina enda klukkan rétt rúml 8! En ferðin til Egina hressti flesta við! � leiðinni sagði Niko mér söguna að baki nafngiftinni á Aegian Sea en ég er ekki klár á ísl. nafninu fyrir þetta haf. Ég ábyrgist ekki að ég segi söguna 100% rétta en hér kemur hún… :)
þjóðsaga 1:
Þannig var að fyrir löngu síðan réði Mynos konungur yfir Grikklandi, frá Krít. � hverjum mánuði þurftu 20 ungir strákar og 20 ungar stelpur að fara til Minoas á Krít til að kljást við völundarhús sem þar var, en þetta var nokkurs konar skattur fyrir Mynos konung. � miðju völundarhúsinu var svo skrímsli(hálf-naut, hálf-maður) sem unga fólkið þurfti að kljást við til að komast í gegnum völundarhúsið. Ef e-r kæmist í gegnum völundarhúsið heill á húfi, þá lofaði Mynos að afnema þessa fólkflutninga. Konungur yfir Aþenu í þá daga var Aegeas og sonur hans hét Thisseas. Thisseas var maður mikill og klár, og eru margar sögur um afrek hans fyrir þennan tíma.
Einn daginn ákvað Thisseas að þessa fólksflutninga þyrfti að stöðva og því fór hann til Krít til að reyna að kljást við Mynotavros, skrímslið. Við komuna til Mynos hitti hann dóttur Mynos, Ariathni, sem féll strax fyrir Thisseas. Hún ákvað því að gera fyrir hann snæri sem væri nógu langt til að hann gæti fundið leiðina til baka úr völundarhúsinu eftir að hafa sigrast á Mynotavros. Þetta snæri var kallað Mytos. Thisseas fór svo í völundarhúsið, drap Mynotavros og fann leið sína til baka með hjálp snærisins. Þar sem að hann hafði sigrast á Mynotavros og komist heill á húfi út úr völundarhúsinu varð Mynos konungur að afnema skattinn og því hélt Thisseas ásamt föruneyti aftur til Aþenu og var mikill fögnuður haldinn í bátnum á leiðinni til baka. Það sem Thisseas aftur á móti gleymdi vegna fagnaðarins var að hann hafði lofað föður sínum að sigla með hvítu segli tilbaka til að tilkynna sigurinn. Skipið sigldi með svörtu segli til Krítar vegna þess hve mikil hættuför þetta var en á leið sinni tilbaka gleymdi Thisseas aftur á móti að skipta um segl. Aegeas faðir hans beið með óþreyju eftir endurkomu sonar síns, við Sounio höfða, og þegar hann sá svart segl á skipinu fleygði hann sér í hafið og lét lífið. Síðan þá hefur þetta haf verið kallað Aegean Sea.
The End.
Egina var rosalega fín eyja, við sáum mjög fallegt hof sem var í fyrstu byggt um 1500 fyrir krist. Hofið sem var endurbyggt fyrir 3 árum var það þriðja í röðinni og var byggt upprunalega um 500 fyrir krist. Mjög Magnað!
Maður fer nú ekki á eyju án þess að fara í sjóinn og því nutum við þess á ströndinni til um 5, en þá fengum við okkur hreint magnaðan mat á grískri Taverna. :)
Við héldum svo heim um 10 leytið, en Ragginn fékk nú aldeilis ekki að fara að sofa þegar hann kom aftur á hótelið því að Filip, eða Sex-Machine eins og ég hef kosið að kalla hann héðan af, dró með sér hana Wendolien frá Belgíu. Ég fékk því að kasta mér í autt rúm í herberginu hjá Flore og Guillome á meðan villt kynlíf stóð yfir í herberginu mínu!!! ;) við nefndum þessa athöfn að Tyrkland hefði loksins komist inn í Evrópusambandið!!!:)
Ekkert merkilegt gerðist í gær svo það er frá litlu að segja, ég fór á Mavili sq. reyndar :)
� eftir erum ég og Nikos að fara á tónleika með SigurRós sem eru dáldið merkilegir þar sem að þeir verða teknir upp og úr þeirri upptöku verður svo gerður DVD diskur! :) Ég get ekki sagt annað en að ég hlakki til því ég sá SigurRós síðast fyrir 2 árum að ég held.
Þangað til bið ég alla vel að lifa á �slandi !!!

posted by Ragnar  # 8:18 f.h.

Archives

05/01/2003 - 06/01/2003   06/01/2003 - 07/01/2003   07/01/2003 - 08/01/2003  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?