<$BlogRSDUrl$>

Raggi hinn Griski

Heimasida um ferd mina til Grikklands sumarid 2003

fimmtudagur, júní 26, 2003

jó! hó! :)
helvíti er maður duglegur að blogga núna, 2 í sömu vikunni! :)
anyway, í gær héldum við upp á afmælið hennar Ögu frá Póllandi á Areios Pagos klettinum við hlið akropolis. Við hittumst á hótelinu kl. 7 og löbbuðum svo saman upp á klettinn og drukkum bjór og léttvín. Eftir u.þ.b. klst komu Ali, Michael og Floraen svo með köku og risastórt kort sem við höfðum öll skrifað afmæliskveðju á okkar eigin tungumáli í. Aga fékk að blása á 24 kerti og svo skáluðum við í ódýrasta kampavíni í heimi, að ég held, og réttum henni svo kortið góða. Að sjálfsögðu réð hún vart sinni eigin kæti og á endanum féllu eitt eða tvö tár...mjög sætt!
Þarna fylgdumst við svo með hvarfi sólar og skemmtum okkur frábærlega á þessum fallega stað fram á nótt. Ég verð samt að viðurkenna að pólverjar eru skrítnir fuglar. Michael kom með eðalvodka frá póllandi og gaf okkur öllum að smakka en ég veit ekki, vodki fyrir mér er e-ð sem maður blandar út í safa eða eitthvað slíkt. Pólverjar aftur á móti drekka vodka eins og ég drekk gott rauðvín, velta því um munninn og láta bragðlaukana ráða ferðinni! Égviðurkenni að ég testaði þetta í gær en djöfulsins viðbjóður! vodka = vodka, of sterkt fyrir minn smekk!
Það skal samt tekið fram, þar sem fólk er farið að hafa áhyggjur af mér heima, að þetta var ekki fyllerí. Við vorum ósköp siðmenntuð á klettinum góða og fórum heim áður en skrallið tók yfirhöndina! :)
� eftir er ég svo á leið með grískum krökkum, sem ég kynntist í Ios, á gríska hc-tónleika (hc = hardcore). Ég fer svo með sama liðinu á tónl. með bandarísku sveitinni Rykers á sunnudaginn! Það kemur í staðinn fyrir að missa af uppáhalds hc-hljómsveitinni minni SOIA sem héldu tónleika í gær á gauknum á �slandi ;)
Svo ætlum við Nikos á SigurRós tónleika á þri. gaman gaman gaman hjá ragganum þessa dagana! happy, happy, joy, joy!!!!!
Planið fyrir helgina er svo Aþena í hnotskurn. Ég hef ekki tekið neinar myndir af Aþenu svo nú er kominn tími til! :-)
Og mikið rosalega var ég sáttur í gærmorgun þegar ég las að snillingarnir í Foo Fighters eru á leiðinni til �slands! Ég hoppaði næstum því af kæti!
� gær talaði Panos svo við mig um að honum sýndist mér leiðast í vinnunni og ég viðurkenndi það alveg þannig að hann kom mér inn í eitt af aðalverkefnunum þeirra. � dag hef ég því haft nóg að gera og það verður líklegast þannig í svona viku, dálítið stórt verkefni!! :) MJÖG GOTT HÉRNA! ! !
Ó, meðan ég man. Ef fólk hefur e-ð út á ísl. mína að setja í sambandi við bloggið mitt, þá er mér allveg skítsama! Ég ritskoða þetta ekkert og ég skrifa beint úr höfðinu svo ég held að stíllinn sé bara betri á þennan veginn! :) FORGET ABOUT IT !!!
smá þýðing:
Den xero elinika = ég tala ekki grísku (i don't speak Greek)
Mia bira, parakalo = einn bjór, takk! (beer, please)
Den kani tipota = það var ekkert! (it was nothing = your welcome)


posted by Ragnar  # 6:00 f.h.

þriðjudagur, júní 24, 2003

Þri. 24 júni.
� dag ákvað ég hvenær ég ætla að koma heim. Planið er að kaupa miða, á morgun, heim þann 23 júlí, svo að ég á innan við mánuð eftir ;( En það verður án efa gaman að koma heim og fara að læra undir sumarprófin :)
En ég þarf nú að segja frá helginni sem leið. Það var dálítið mikið að gera hjá mér í gær svo að ég komst ekki til þess að skrifa bloggið mitt.
Eins og ég sagði frá á föstudaginn þá lá leið okkar til eyjunnar Ios á föstudagskvöldið. Við tókum ferjuna klukkan 10 og vorum komin til Ios um 7 leytið. Ansi löng sigling það, en ég er farinn að kunna á þetta svo ég svaf meiri hlutann af leiðinni, á gólfinu ;) En þegar við komum beið okkar kona frá hótelinu sem Iaeste hafði bókað fyrir okkur svo við gátum farið beint þangað og lagt okkur aðeins fyrir strandferð dagsins. Við héldum svo um 11 leytið í sitt hvora áttina, ég og 7 aðrir fórum á nærri mannlausa strönd á enda eyjunnar sem flestir eyjabúar eru sammála um að sé sú besta, Manganari. Deginum eyddum við þar, en aldrei þessu vant synti ég í næstum klukkustund án hvíldar. Mjög gaman!!!
Eftir að við komum aftur af ströndinni drukkum við nokkra bjóra á hótelinu ásamt því að fylgjast með Lukas drekka Aquavit með tilheyrandi sænskum drykkjuvísum og á endanum hafði kappinn drukkið næstum hálfa flösku. Þá ákváðum við að tími væri komin til þess að fá okkur e-ð að borða og við héldum á Gríska Taverna og fengum okkur ekta grískan mat! Ég er officially orðinn óður í sverðfisk, hann er alveg magnaður! Fyndið að koma frá �slandi þar sem megin atvinnuvegur þjóðarinnar er sjávarútvegur og hafa sjaldan borðað jafn mikinn fisk á ævi sinni! :) En þess skal að sjálfsögðu getið að Lukas var búinn að drekka hálfa flösku af ákavíti, og kom það því engum í opna skjöldu er hann skilaði matnum sínum í hafið u.þ.b. 4 mín eftir að hafa klárað af disknum. Það er e-ð með þennan hóp og að geta ekki verið með fullu eðlileg á veitingastöðum á laugardögum! :D
Næturlífið beið okkar nú, en flestir Grikkja segja manni að næturlífið í Ios sé með því betra. Mikið af ódýrum klúbbum og mikið af fólki að dansa og tjútta! MJÖG GAMAN skal ég segja ykkur.
Guillome vinur minn stóð sig einnig eins og hetja í drykkju eins og helgina áður. Guillome tók sig til um mitt kvöldið og gaf stelpu sem hann þekkti ekkert 10 evrur upp úr þurru og hún labbaði í burtu!!! :) Hann hefur enn ekki hugmynd af hverju hann gaf henni þennan pening en hann velti því einnig mikið fyrir sér hvort hann hefði gert e-ð meira svona, því hann hafði tekið pening út af kredikortinu sínu, en mundi ekkert hvað varð um þann pening!!! Eftir þetta týndi hann töskunni sinni, týndi sjálfum sér í þessum litla bæ og endaði með því að taka leigubíl á hótelið okkar sem var í 5 mín fjarlægð frá miðbænum!!!! :) Þessi maður er snilld!!
� sunnudaginn vöknuðum við um 11 til að yfirgefa hótelið en ég ákvað að eyða 5 evrum meira til að hafa herbergið fram á kvöld, var dálítið mikið þreyttur!! ;) En yfir daginn röltum við um eyjuna og kíktum á strendurnar 2 í nágrenni bæjarins þó svo að ég þyldi sólina frekar illa vegna mikillar sólarlegu daginn áður. Það var mjög fyndið að sjá að Lukas er orðinn dálítið hræddur við Ryan, sem blessunarlega kom ekki með í þessa ferð, en Ryan finnst við evrópubúarnir hugsa full mikið um útlit og hárgreiðslu og slíkt og því hefur Lukas falið sólarolíu sem hann notar til að fá betri brúnku, fyrir Ryan !!! :) Hann heldur víst að Lukas sé nógu Gay fyrir! :) Þessir Kanar!
En við yfirgáfum svo Ios um 11 leytið eftir þessa líka þrusufínu ferð. Ég er samt ákveðinn í því að fara ekki til annarrar eyju um næstu helgi, spara smá pening og njóta þess í Aþenu og mæta einu sinni hress og kátur í vinnu á mánudegi. :p
Annars er ég ekki búin að læra neina nýja grísku svo ég læt þetta duga í dag og skrifa vonandi aftur fyrir helgi! :)
posted by Ragnar  # 4:44 f.h.

föstudagur, júní 20, 2003

Jæja, ég hef ekki bloggað síðan á þri. Hvað á þetta að þýða!
Ég get því miður ekki notað þá afsökun að ég hafi verið upptekinn í vinnunni! ;) En málið er nú bara það, eins og ég hef sagt, að það gerist ósköp fátt hérna á virkum dögum. En ég er jú fluttur um hótel og líkar mér vistin á Omega bara nokkuð vel. Það er erfitt að útskýra það en þrátt fyrir, helmingi fleiri moskítóbit hverja nóttu, óhugnarhávaða hvern morgunn frá 7 og enga loftkælingu þá sef ég eins og engill í þessu hóteli. Hvort þetta tengist því að vera laus við Ryan veit ég ekki en ég hefði vel verið til í að hafa Filip sem herbergisfélaga frá upphafi, rosalega fínn gaur í alla staði. Hann er samt Tyrki (Eiríkur :) ). Það er reyndar búið að vera dáldið óheppilegt að vatnið hefur tvisvar verið tekið af herberginu, vegna endurnýjunar á pípunum, um 4 leytið þannig að maður kemur heim sveittur eftir vinnuna og getur ekki farið í sturtu fyrr en morguninn eftir. Held hún Heiðrún mín sé ánægð að vera laus við mig vitandi þetta! :)
En Planið fyrir helgina er að fara til eyjunnar Ios en eftir þessa ferð verður tekin pása frá eyjaferðum og verður sennilegast haldið til Sounia höfða næsta laugardag í eins dags ferð. Svo að þá ætti ég mögulega að geta átt einhvern aur eftir, eftir helgina. :=)
En ég ætti að halda áfram starfi mínu, ég hef nefnilega helling að gera í dag, ótrúlegt en satt!.
Þýðing dagsins:
signomi = Afsakið (excuse me)
me sighorite = Fyrirgefið mér ( excuse me, formal)
oriste = gjörðu svo vel (here you go)
krasi = vín ( wine)
pino = drekka (to drink)
potiri = glas af víni (glass e.g. a glass of wine)


posted by Ragnar  # 6:57 f.h.

þriðjudagur, júní 17, 2003

Welcome to the Super Gay Island of Mykonos, where the sun always shines and naked gay men watch your every step! :)
Nei ég segi svona...
� föstudaginn eyddi ég deginum í að vera reiður útí IAESTE nefndina hér úti en þau höfðu klúðrað ferðinni til Ios og einnig höfðu þau logið að mér í sambandi við hótelið, svo að ég þurfti að borga meira fyrir gistingu en hinir hér úti. Þau höfðu gert samning við Solomou hótelið upp á 8.5 evrur á dag en sögðu okkur að við þyrftum að borga 7.5. En allt fór vel á endanum, ég borgaði fyrir veru mína á Solomou hótelinu og færði farangurinn minn yfir á Omega hótelið en ég þurfti því ekki að borga þessa 3 daga sem við fórum til Mykonos. Þannig að ég kom út í plús. Mjög Gott!
En að ferðasögunni, við lögðum af stað frá Pireus um 12 leytið á föstudagskvöldinu og spiluðum og höfðum það gott á bátnum þar til við vorum komin hálfa leið en þá kom skítakuldinn af hafinu inn á bátinn en við gátum ekki leitað inn í bátinn þar sem við vorum með þilfarsmiða(ódýrari). En gáfumennið sem ég er tók náttúrulega enga yfirhöfn eða neitt slíkt með mér eftir lúxusferjuna sem við fórum með til Santorini. Samt sem áður borguðum við 18.6 evrur fyrir miða báðar leiðir fyrir mun verri bát og styttri vegalengd. Ætla að halda mig við Blue-Star ferjurnar héðan í frá! :)
En við komum til Mykonos kl. 7 og þá tók við leit að hóteli. Eftir fyrstu 20 mín þarna stoppaði alger argasti snillingur Alex og bauð okkur hótelgistingu hjá sér. Við vorum ekki allveg nógu ánægð með staðsetninguna því við þurftum að taka rútu á allar strendurnar og við vorum ekkert of nálægt miðbænum Hora (Hóra :) ). Við ákváðum því að leita á hótelmiðstöð, sem var ekki fjarri, eftir gistingu en þar opnaði kl. 9. � meðan við biðum kom Alex vinur okkar u.þ.b. 10 sinnum að heilsa upp á okkur með fleygum setningum á borð við "Alex is the BEST" og "Beach, 10 minutes" en ströndin sem hann átti við var ógeðsleg strönd eiginlega við höfnina! :) En eins og ég segi, mjög geðveikur Grikki í góðum fíling í morgunsárið. Við fundum svo hótel á endanum fyrir 18 evrur per nótt og komum við þangað kl 12. Allir voru náttúrlega ótrúlega þreyttir eftir ferðina en við fórum beint á ströndina og nokkrir óheppnir sofnuðu fulllengi með hendurnar á bringunni. Filip var með þessi pottþéttu handarför á bringunni, allveg eins og fífl! :) Þar fyrir utan brunnu Guillome og Floraen illa vegna svefns. Ansi góð byrjum þetta !!!!
Um kvöldið fengum við okkur þennan fína mat á veitingastað ekki fjarri Hora en þar smakkaði ég sverðfisk að ég held í fyrsta skiptið, hann var rosalega góður(grillaður og alles, mmmmmmm!). Þessi máltíð var eftirminnileg með meiru þar sem að Guillome hafði drukkið 5-6 glös af Ouzo áður en við fórum á staðinn svo hann var ansi ölvaður. Það tók hann 40 mín að lesa matseðilinn og aðra eins borðsiði hef ég aldrei séð. Hann var það fullur að hann tróð matnum upp í sig, borðari með höndunum og alles! Það voru teknar svona 30 myndir af honum og mig verkjaði í andlitið eftir máltíðina vegna hláturs! :)
En eftir þetta fórum við í partí á Paradise-beach en þar var dansað og drukkið undir dúndrandi dansmúsík fram á morgun! Vitleysingarnir sem ég var með þarna ákváðu að labba alla leiðina á hótelið sem tók þá næstum því 2 klst en ég Christy(ástralíu) og Rami(Oman) tókum leigubíl á hótelið og komum 1 og hálfri klst á undan hinum heim eða klukkan 6:30 (borguðum 2 evrur á kjaft) hehehehehehehehe :)
Daginn eftir vöknuðum við seint og eyddum deginum á ströndinni en um kvöldið löbbuðum við um bæinn og stungum höfðinu inn á hvern pöbbinn á fætur öðrum og drukkum eins og sönnum túristum sæmir. Gaman að djamma í Mykanos! :)
� gær fórum við svo á Paradise-beach aftur, núna til að liggja í sólinni. Eftir að hafa verið þar í smástund var okkur strákunum(gaurunum :) ) farið að leiðast og því ákváðum við að labba yfir á Super-Paradise-beach. Okkur þótti þetta nafn of fyndið til að sleppa því og því héldum við í 30 mín göngu þangað yfir. Þegar við svo komum á ströndina sáum við næstum ekkert annað en nakta homma út um allt! Við komumst heilir á húfi inn á miðja ströndina en þar var hellingur af klæddu gagnkynhneigðu fólki svo við ákváðum að stoppa aðeins. Þessi strönd var rosalega falleg og sjórinn kristaltær. En fyndnast var þó þegar einn homminn fór upp á klett rétt utan við ströndina, dró niður um sig buxurnar og hóf að þykjast kúka þarna fyrir framan alla! Við strákarnir trúðum ekki okkar eigin augum enda emjaði gæinn svo mikið að öll ströndin heyrði. Sækó! :)
Með lamaða hlátursvöðva héldum við svo aftur í bæinn Hora og eyddum restinni af kvöldinu í afslöppun. Báturinn fór kl 12:30 svo að ég kom til Pireas kl 7 í morgun. Fór svo á nýja hótelið mitt, lagði mig í klst og fór í vinnuna klukkutíma of seinn en það var í góðu, allir vissu hvar ég hafði verið svo...
Ætla að láta þetta duga í dag! Engin þýðing dagsins á grísku en smá pólska hérna:
Þýðing dagsins:
Dzien dobry = Góðan daginn (good morning)
na zdrowie = Skál (cheers)

posted by Ragnar  # 5:32 f.h.

föstudagur, júní 13, 2003

Halara! (ímyndið ykkur Barða í BangGang segja khalara!) :)
Jæja, ég hef yfirgefið heim sjálfsmorðshugleiðinga og leiðinda! Ég flyt frá Solomou í kvöld og mun því ekki borga fyrir tvö hótel í einu, á meðan ég dvel á eyjunni Mikanos um helgina, eins og hinir vitleysingarnir :) Og því ætti ég að koma út á núlli út úr þessu öllu saman!
Eins og ég sagði þá verð ég á eyjunni Mikanos frá 5 í nótt fram á mánudagskvöld! Og ég veit ekkert um þessa eyju nema að hún inniheldur einn hommaklúbb sem ég ætla EKKI inn á, og að hún er dýrari en hinar. Oh well!
Ragginn er mættur á ný hress og kátur! :-)
Góða helgi allir!
posted by Ragnar  # 5:14 f.h.
� dag heði ég átt að sleppa því að fara fram úr! Þetta er einn af þessum dögum þar sem lögmál Murphy's sannast, allt sem getur farið á rangan veg, gerir það!
Ég er búinn að vera dálítið pirraður frá því að ferðin til Ios var blásin af í gær. Málið er að allir íbúar Aþenu vilja fara út úr bænum þessa helgi vegna frídagsins á mánudag svo að ferjuferð fyrir okkur öll var ekki til staðar. En í gær var haldinn fundur þar sem allir voru ósammála um hvert átti að fara og í fyrsta skiptið frá því ég kom hingað átti ég ekkert svo skemmtilegt kvöld. Reyndar kom ég seint á þennan fund þar sem ég fór og hitti krakka frá Erasmus prógramminu hérna í Aþenu áður. Fyrri partur kvöldsins var góður, Eleana ein þeirra sem ég hitti hefur komið til �slands og hún lofaði skyr, söng "ríðum, ríðum, ríðum yfir sandinn" og lofaði meira að segja Perluna. Nokkuð skemmtilegt að hitta fólk sem hefur komið til �slands og líkað vel. En eins og ég segi þá var þetta því miður bara fyrri parturinn!
Annað atriði sem er að gera þennan dag helvíti er að ég veit ekkert hvort ég geri e-ð um helgina ásamt því að hótelstjórinn okkar var að tjá IAESTE að við þyrftum að borga 8.5 € á dag í stað 7.5 þannig að við erum að borga meira en hinir sem gista í Omega hótelinu. Og fyrir utan það kom þessi fíni Svíi til okkar í gær sem okkar 3 félagi í herberginu og því er ekki pláss til að anda þarna inni. Hótelstjórinn er í raun að fá í heildina yfir 1000 € á mán fyrir herbergið með styrknum frá Háskólanum hér svo.... Raggi reiður! Fyrir utan það þá hef ég ekki getað fengið að borga fyrr en í dag svo ég gat ekkert sagt og því þarf ég að borga 3 vikur á þessum prís í stað þess að hafa getað flutt strax á hitt hótelið! :(
Ætla ekki að segja meir í dag.
Vonandi betri fréttir síðar.
posted by Ragnar  # 2:50 f.h.

fimmtudagur, júní 12, 2003

Æi verður maður ekki að birta mynd af okkur félögunum saman líka svona þannig að þið heima sjáið að ég er ekkert breyttur???? :)
Anywho þá sitjum við þarna félagarnir Filip, ég og svo Michael, talið frá vinstri. Kaffihús
Nú er reyndar komið á hreint að við erum að fara til eyjunnar Ios um helgina en þar er mest megnis drukkið svo þetta ætti að verða athyglisverð helgi :) Nei ég segi svona, en um þessar mundir eykst fjöldi túrista á eyjunum daglega og því er fínt fyrir okkur að fara sem fyrst í ferðir á eyjurnar til þess að sjá e-ð annað en næturlífið. Ég fór reyndar með Nikos og Yanos(vonandi rétt stafað?) að ná í nýjasta meðlim IAESTE fjöskyldunnar(family) í Aþenu en það er hún Karin frá Tékklandi. Hún þurfti að ferðast í 40 tíma með rútu!!!!!!! Og ég sem hélt að það hefði verið erfitt að sitja í rútu í 13 tíma frá Köben til Heidelberg !!!! :)
En ég og Ryan fáum herbergisfélagann okkar um helgina svo ég þarf víst að taka til í dag! ;) Það er dáldið magnað með þennan dreng að hann heldur að allir þoli sig ekki. Hann ,reyndar, lætur eiginlega aldrei sjá sig með okkur og þegar hann gerir það stoppar hann í 40 mín! Ég ætla að vona að þetta sé ekki sú ímynd af kana sem ég muni sjá aftur!
En eins og ég hef áður sagt þá gerist lítið á virkum dögum hérna svo ég læt þetta duga í bili.
Þýðing dagsins:
ligo = smá (a little)
poli akrivo = of dýrt (to expensive)
poso kani = hvað kostar þetta (how much does it cost?)
kati pio fthino = e-ð ódýrara (something cheaper)
thialima = hlé, kaffihlé , hádegishlé (break e.g. lunch break)
og loksins fæ ég að vita hvað ég geri allan daginn :=)
araliki = að gera ekki neitt allan daginn ( to nothing all day)
ta xino = ég hef svo lítið að gera að ég klóra mér á pungnum :) (I scratch my balls, since there is nothing else to do)
Það er kannski ágætt að útskýra að munurinn á poli = borg og poli = mikið liggur í mism áherslum á sérhljóðana.
fyrir borg er áherslan á o-ið en fyrir mikið liggur hún í i-inu!
posted by Ragnar  # 1:31 f.h.

miðvikudagur, júní 11, 2003

Hann Nikos vinur minn var að kvarta í gær að ég tala ekkert um hann hérna á blogginu mínu. Af e-i stórfurðulegri ástæðu þá þykjast þau geta lesið íslensku og eru því að reyna að skilja þetta blogg mitt svo að fyrir hann ætla ég að birta mynd af honum og Dimitris. Þessir tveir eru miklir snillingar
Nikos (vinstri) Dimitris (hægri)
There you go Nikos my friend! :)
Now everybody knows you!

posted by Ragnar  # 11:56 e.h.
Ég er ekki frá því að ég eigi orðið enga vini á �slandi. Allaveganna ekki tölvuvædda! Ég held ég hafi sjaldan fengið jafn lítið af tölvupósti á ævi minni :)
Ef e-r vill deila lífsögu sinni með mér þá go a head, ég hef þá e-ð að gera í vinnunni þessa vikuna :)
posted by Ragnar  # 7:11 f.h.
Þetta er ástæðan fyrir því af hverju ég ætla ekki að eignast börn !!!!!!!!! :)
Hræðilega fyndin auglýsing (3 MB)



posted by Ragnar  # 3:20 f.h.
Edaxi!!!!!
Búnir að vera tveir mjög afslappaðir dagar í vinnunni hjá mér. Panos yfirmaðurinn minn er í fríi svo ég er eiginlega bara búin að vera að leika mér að teikna hluti í AutoCAD sem er fínt þar sem ég hafði aldrei prufað það. Þeir nota AutoCAD mjög mikið hérna í allan fjandann svo að ég get þá kannski farið að gera e-ð meira fyrir Elxis. En í gær var nokkuð gaman hjá okkur því það var IAESTE fundur á Ostria Café. Þeir verða héðan í frá alla þriðjudaga en þarna getum við fengið tiltölulega ódýrt kaffi og að sjálfsögðu bjór. :) Fyrsta stelpan er komin í hópinn en hún er frá Póllandi og gladdi það Michael mikið að geta loksins talað við e-n á pólsku. Hún heitir Agnieska, ég er örugglega ekki að stafa þetta rétt en við köllum hana Öggu! Annars var plönuð ferð í gær til eyjunnar Ios sem er í rauninni eyjan við hliðina á Santorini(Thira) þannig að við förum í álíka ferjuferð. Þetta mun samt verða ódýrara því í þetta skiptið verðum við 24 sem förum. Ios er sögð vera partíeyjan og því hlakka ég mikið til :) en í þokkabót er almennur frídagur í Grikklandi á mán þannig að við getum verið þarna í 3 daga sem er náttúrulega ekkert nema snilld! ;) En eins og ég segi þá er lítið búað að vera gerast svo ég ætla að halda áfram að teikna.

Þýðing dagsins:
Halara = Ekkert mál, auðvelt ( no problem, easy)
rakos = Þreyttur, dauðuppgefinn (too tired, exhausted)
varie me = Mér leiðist (I'm bored!)
horos = dansa (dance)
lefta = peningar (money)
nisi = eyja (island)
posted by Ragnar  # 1:41 f.h.

mánudagur, júní 09, 2003

Smá auka þýðing
akron = horn , poli = borg
Akropolis = horn borgarinnar
Þetta stafar af því að Akropolis er á hæsta punkti Aþenu og er því horn borgarinnar. Allar borgir höfðu á hæsta punkti sínum Akropolis en Aþena er sú eina með fræga hluti þar. :)
posted by Ragnar  # 6:54 f.h.
Vá hvar á ég að byrja! Þessi helgi var rosaleg!
O.k. þetta ævintýri byrjaði á því að Ali frá Oman hringdi í mig og sagði mér að hann, Michael frá Póllandi og Bjorn frá Þýskalandi ætluðu að fara til Santorini. Ég spurði alla í vinnunni hvernig Santorini væri og að sögn allra var þetta talin ein fallegasta eyja Grikklands. Ekki of mikið af túristum og mjög hrein eyja. Svo ég ákvað að skella mér bara án þess að vita neitt hvernig við færum, hvar við myndum gista eða neitt! :)
Við fundum verslun sem seldi miða með ferju og við keyptum miða fyrir 25 evrur til Santorini, fram og tilbaka. Þessi ferð tók 7.5 klst og að sjálfsögðu vorum við allir að deyja úr spenningi á leiðinni. Ferjan sem við tókum var rosalega nice og reyndist siglingin því nokkuð skemmtileg, og að sjálfsögðu fengum við okkur bjór og svona þannig að... :)
Við komum til Santorini rúmlega eitt um nóttina og fundum við hótel næstum strax þar sem að þarna bíða alltaf menn til að pikka upp túrista. Gæinn byrjaði á að bjóða okkur gistingu í tvær nætur fyrir 100 evrur á mann en þetta endaði í 25 evrur á mann eftir mikið prútt ásamt því að stúdentaskírteinið hjálpaði okkur. Gaurinn bauðst til þess að keyra okkur á hótelið og þvílíka bílferðin!!!!!!! Ég er ekki frá því að þessi gaur hafi verið fyrrum rallíökumaður þar sem að hann keyrði eins og brjálæðingur. Ég ríghélt mér allveg í sætið og alles, en eins og gefur að skilja þá eru vegirnir í Santorini ekkert rosalega breiðir. Anywho, eftir hverja beygjuna á fætur öðrum á rúml 100 km/klst hraða í gegnum þröng stræti og vegi komum við á hótelið okkar í Perissa. Ég og Bjorn fengum fínt herbergi strax en aumingja Ali og Mike þurftu að harka í gæjanum frá hótelinu vegna þess að þeri fengu herbergi án klósetts. Það tókst á endanum hjá þeim en þeir þurftu samt að sofa saman í einu rúmi! :) Við tjékkuðum á umhverfinu í kringum hótelið en fórum svo að sofa. Við vissum að við hefðum takm. tíma svo að við vöknuðum snemma og fórum á bílaleigu og leigðum bíl fyrir 20 evrur! í 24 klst. � honum fórum við svo að skoða eyjuna. Við byrjuðum á að kíkja á aðalbæinn Fira sem er meiriháttar fallegur bær staðsettur á toppi eins fjallanna þarna. Eyjan er í rauninni eitt fjall svo að maður þurfti alltaf að keyra niður miklar brekkur til að komast á strendurnar þarna. En Fira var allveg meiriháttar, fallegt útsýni yfir eldfjallið og nágrennið og hús í spænskum-stíl út um allt. Ég ætla að búa þarna! :)
Eftir þetta fórum við á Rauðu ströndina en það er strönd með einungis rauðum sandi eins og maður þekkir frá �slandi. Þar syntum við í þessu ótrúlega hreina hafi í kringum Santorini og lágum í leti í smástund til að slaka nú aðeins á! ;)
Nú héldum við í áttina að hvítu stöndinni en það var ekkert grín að komast þangað skal ég segja ykkur. Vegurinn var eins og slæmur jeppaslóði og við vorum á Hyundai Atos! Við komumst á endanum á ströndina og skoðum okkur um en héldum svo ferð okkar áfram. En ekki gekk nú allt eins og í sögu með að komast upp aftur. Við festumst að sjálfsögðu í einni af brekkunum. Málið var í raun það að gírkassinn í bílnum var hryllingur, við keyrðum upp en um leið og bíllinn fór að spóla e-ð datt hann úr gír. Eftir svona 10 tilraunir um að komast upp settist ég undir stýri og strákarnir ýttu á eftir mér upp brekkuna og það tókst naumlega að koma hræinu upp! Nú reyndum við að fara að skoða Ancient Thiria sem er fornleifasvæði en viti menn, fornleifafræðingarnir voru í verkfalli svo að við gátum ekki komist inn á svæðið. En við létum það ekki á okkur fá og héldum í áttina að Messapigadia sem er endir eyjunnar í suðvestur. Þar gátum við farið fram á klöpp og skoðað eyjuna með snilldar útsýni.
Nú var klukkan orðin nokkuð margt svo við reyndum að finna vínhátiðina sem ég hafði lesið um á einni af síðunum en allt kom fyrir ekki og við fundum þetta hvergi og flestir íbúanna nema einn könnuðust ekkert við þetta. En einn sagði okkur að fara til Kamira bæjarins sem við ákváðum að gera eftir að hafa horft á sólsetrið frá Ia, en það er talið með þeim fallegri. Að sjálfsögðu voru eiginlega bara pör þarna út um allt svo ég saknaði Heiðrúnar minnar mikið akkúrat þarna.
En þarna keypti ég mér svo vínflöskur frá Santorini en það er vínviður út um alla eyjuna og þeir framleiða víst ansi mikið af víni. Ég hafði smakkað Visanto(þrúga) sem er hálfgert dessertvín í anda Madeira og púrtvíns en mér þótti það svo gott að ég keypti flösku til að taka með heim til �slands. :) Fyllibyttan Ragnar! :)
Eftir þetta fallega sólsetur héldum við í átt að vínhátíðinni sem fannst hvergi! En við sáum þennan fallega bæ Kamira svo að við höfðum coverað u.þ.b alla eyjuna á einum degi sem er nokkuð góður árangur að ég held! :)
Nú fórum við aftur til Perissa þar sem við fórum á djammið með bandaríkjamönnum, áströlum, bretum, grikkjum o.fl. og fleiri. Það er nokkuð gott að drekka þarna því að maður gat fengið næstum hvaða kokteil sem er fyrir 3 evrur. Bjórinn var dýrari svo maður drakk bara kokkteila eins og sannur túristi. :)
Við vöknuðum nokkuð snemma á sunnudeginum til að geta legið aðeins á ströndinni við hótelið okkar en hún er kölluð svarta ströndin vegna sandsins sem þar er. Ansi heitur sandur skal ég segja ykkur :)
Við héldum svo til ferjunnar sem fór kl 15:30, svo að 4 ofsalega þreyttir strákar fóru í ferjuna og dóu nokkurn veginn eftir að hafa kvatt eyjuna fögru.
Við vöknuðum svo eftir svona 2 tíma og spiluðum þangað til við komum til Pireas í Aþenu.
Rosalega skemmtileg ferð á enda!
Ég lærði heilmikið um hann Ali félaga og landið hans Oman í ferðinni en Oman er olíuríki við hlið Saudi Arabíu. Hann hefur breyst mikið frá því ég talaði fyrst við hann en þá vildi hann ekki borða neitt kjöt sem ekki hafði verið meðhöndlað á íslamskan hátt, einnig mátti hann ekki drekka. � þessari ferð aftur á móti borðaði hann að vild og drakk aðeins með okkur, hann vildi prufa evrópska háttinn. �fengi er actually bannað í Oman fyrir local fólk, en það er flutt inn í takm. magni fyrir túrista. Einnig er þetta land svo ríkt að hann fær actually borgað frá ríkinu fyrir að vera í Grikklandi að vinna. Ríkt ríki Oman! :)
Gaman að þessu fólki hérna, nýjir hlutir sem ég læri á hverjum degi = alger snilli!

Þýðing dagsins:
Parakalo(aftur) = Please
edaxi = o.k.
ela = flestir svara svona í símann, þetta þýðir komdu en þetta táknar í raun halló eða hvað. (what, hello)
ti? = hvað? (what)
thiakopes = frí (vacation)
poli = mikið (much)
poli = borg (city)
posted by Ragnar  # 4:10 f.h.

föstudagur, júní 06, 2003

Hjólin eru svo sannarlega farin að snúast með öllum þessum nýju gaurum sem eru komnir til Aþenu. Þessi helgi leit út fyrir að verða ósköp venjuleg helgi hjá mér, þ.e. að hanga í Aþenu og reyna að gera sem minnst. En nú er ég að fara til Santorini eyjunnar sem er í 6klst fjarlægð frá Aþenu. Þetta á að vera ein allra fallegasta eyjan í Grikklandi og því get ég ekki sagt annað en að ég sé miklu meira en spenntur! :)
Fyrir áhugasama þarna úti getið þið skoðað þessar síður Santorini.net og Santorini.com en þær hafa e-r myndir og svona af Santorini.
Að öðru leyti þá fékk ég fyrsta hrósið fyrir þetta blessaða blogg mitt í gær. �nægður með að e-r hafi gaman að þessu!
� gær fórum við strákarnir(allir) í partí hjá Erasmus stúdentum á stað sem heitir Ostria café. Þar hittum við tonn af skiptinemum héðan og þaðan sem var alger snilld því að þau vita orðið heilmikið um hvað er að gerast hér í Aþenu. Ég verð að viðurkenna að ég er svolítið slappur eftir þetta kvöld en það var MJÖG gaman! :)
Síðan erum ég og Ryan reyndar að reyna að fá leigða íbúð af erasmus nemum sem eru að fara í frí. Þetta myndi kosta okkur jafnmikið eða jafnvel minna heldur en hótelið og þar fyrir utan ætti ég að komast í eldhús og ískáp sem gerir kvöldin mun ódýrari!
Þetta kemur allt í ljós síðar. Mér var reyndar gefið nýtt nafn í vinnuni fyrir 2 mín síðan þar sem að þeim þykir ég ansi heppinn frá því að kom hingað. Var fyrstur þeirra í fyrirtækinu til að sjá IBC og svo er víst vínfestival í Santorini um helgina svo ég ætti að geta smakkað vín frá þessari eyju fyrir lítinn sem engan pening og svo hafa fleiri smá atvik komið upp. Hence nú heiti ég Lucky! :)
Ætli ég láti þetta ekki duga í bili en ég fer ekki án smá tungumálakennslu!

Þýðing dagsins:
Ta leme avrio = sjáumst á morgun
neo = nýtt
Malaka = þýðir víst nákvæmlega, maður sem handfjatlar sjálfan sig ákaft! :) Grikkir nota þetta orð mjög mikið, segja Ya! Malaka við vini sína til dæmis ;)





posted by Ragnar  # 4:52 f.h.

fimmtudagur, júní 05, 2003

Og fyrir ykkur tölvunördana þarna úti
Þýðing dagsins:
nero = vatn :)
posted by Ragnar  # 2:12 f.h.

miðvikudagur, júní 04, 2003

Jæja þá er farið að færast fjör í spilin hérna!
Með hverjum deginum fjölgar nemunum hérna og því verður skemmtilegra og skemmtilegra með hverjum deginum. Eina vandamálið er að bandaríkjamaðurinn herbergisfélaginn minn er farinn að hrjóta eins og miðaldra kall á hverri nóttu þannig að ég get lítið sem ekkert sofið lengur. Ég neyddist til að vekja hann í nótt til að hann myndi hætta þessum helvítis hávaða. :) Henti í hann dagblaði! :)
Annars er hann eiginlega að valda mér mestu hugarangri þessa dagana þar sem að kaninn í honum kemur betur og betur í ljós með hverjum deginum. � fyrradag sáum við auglýsingu í sjónvarpinu þar sem voru grískir krakkar í rosa-flottri íbúð og þá tjáði minn sig að hann teldi að það gæti ekki verið að svona íbúð gæti ekki verið til í Grikklandi þar sem allar byggingar í Aþenu eru svo gamlar! Um leið og hann sagði þetta varð ég spyrja hann hvernig til dæmis miðbær Chicago liti út og hvort ég ætti að halda það sama ef ég byggi þar e-n tímann í 10 daga????
Kanar eru vitleysingar!!!!!!
Annars nóg um þetta mál! Eins og ég sagði áður er okkur að fjölga eins og engisprettum hérna og því er meira og meira að gera á kvöldin. Við fórum til dæmis allir saman í gær að skoða Likavitos hæðina, en þaðan getur maður horft yfir alla Aþenu!!! Mjög stórfenglegur staður þó svo að nú varð ég loks var við mengunina yfir Aþenu en það sakaði ekki, sólarlagið sem við horfðum á þaðan var magnað!!! Eftir þetta fórum við að spila á hótelinu hjá hinum fram yfir miðnætti. Það má með sanni segja að ég hafi ekki verið neitt afskaplega heppinn í spilum í gær þar sem að ég tapaði öllum leikjunum! (Heppinn í ástum! :) ).
En eftir þessa gríðarlegu niðurlægingu fór ég á hótelið mitt og hringdi í Heiðrúnu! Og mikið rosalega talaði ég fáranlega íslensku! Ég er ekki frá því að ef ég e-n tímann flyt til útlanda eigi ég eftir að gleyma íslenskunni minni alfarið. Þetta er svo sem allveg skiljanlegt þar sem ég hugsa allt á ensku hérna úti. En hverju sem því líður þá sagði Heiðrún mér að fólkið mitt heima væri að spyrja hana að hinu og þessu um mig og Aþenu sem ég hef engum sagt svo að hér koma nokkrir molar!
1. � Aþenu eru óeðslega mörg móturhjól!!!!
2. Vatnið hérna er mengað með klór en það er í góðu lagi að drekka það, reyni samt að forðast það!
3. Matur hérna er nokkuð ódýr þó svo að local fólkið segir mér að matvara hafi 2faldast í verði frá því evran var tekin í notkun!
4. Ég vinn inn og því er ég ekki orðinn neinn súkkulaðimoli! (Civic-töffari það er! :-) )
5. Hótelið mitt og hinna krakkanna er í ógeðslegustu hverfum Aþenu.
6. Hitinn hérna er alltaf yfir 30 stig og það er snilld!
7. Hérna er rosalega skilvirkt, ódýrt og auðvelt almenningssamgöngukerfi!
8. Vinnan mín er snilld!
9. Eftir 2 vikur fer ég í 2 daga ferð á Gríska eyju!
10. Það er lítið um þjófnað og slíkt hér svo ég hef næstum engar áhyggjur!
11. Svona listar eru leiðinlegir!

Ef e-r þarna úti sem lesa þetta hafa áhuga e-u fleiru þá skal ég svara um hæl ef þið sendið póst á þessa addressu rfm@simnet.is.
V� ég var næstum búinn að gleyma því að ég fékk að fara í IBC í gær sem er International Broadcasting Service, húsið sem mun hýsa alla fréttastarfsemi frá ólympíleikunum! Þangað fékk að fara vegna þess að Elxis er aðalhönnuðurinn á þessu húsi og fórum ég og Grigoris fyrstir allra í fyrirtækinu þarna inn!
Ég get ekki sagt að þetta hafi verið neitt stórkostlegt en við sáum nokkuð af húsinu og okkur var lofað að við mættum koma aftur og sjá breytingarnar innan tíðar. Eins og gefur að skilja vinnst allt frekar hratt núna í Aþenu vegna þess hve stutt er í leikana (436 dagar) svo að ég hlakka til að fara þangað aftur!
Annars ætla ég núna að drífa mig að hitta strákana og slátra þeim í pool! It's payback time!!!!!! :)

Þýðing dagsins:
Akron = horn ( horn á ferhyrning t.d.)
bira = BJÓR! :)
lioma = Fullur
fititiko isitirio = stúdentamiði (helmingi ódýrari miðar í strætó og metro! )
posted by Ragnar  # 8:06 f.h.

mánudagur, júní 02, 2003

Dagur 8.
Jæja, djöfull er ég ekki duglegur að skrifa þessa dagana. Annars held ég nú að ef maður er að skemmta sér þá er maður ósköp lítið að hanga í tölvunni og það er án nokkurs vafa tilfellið með mig.
Nú eru mun fleiri IAESTE krakkar(strákar) komnir til Aþenu og því er mun meira hægt að gera á kvöldin en áður. Reyndar munu vera 150 manns sem koma á vegum IAESTE til Aþenu í sumar, en flestir koma í Júlí. � föstudaginn fór ég í fyrsta skiptið á djammið í Aþenu og var það snilld fyrir utan það að bjórinn er dálítið dýr á börunum. Ég og Dimitris ásamt vinum hans fórum á írskan pöbb rétt fyrir utan miðbæinn og þar var fyndnasta hljómsveit ever!!!! Það voru allir yfir 55 ára og því ansi spaugilegir. Söngvarinn hélt án nokkurs vafa að hann væri Mick Jagger og þar fyrir utan var hann óendanlega mikill töffari miðað við aldur! In a funny way, að sjálfsögðu :) � þessum bar þurfti ég að punga út 7 evrum fyrir einn bjór sem stakk mig beint í hjartað, eða kannski bara veskið ;)
� laugardeginum ákvað ég að taka túristapakkann og fór því að skoða Akrapólisarhæðina með meðfylgjandi labbi í 4 klst! Því miður fór ég einn, en það skipti svo sem engu máli þar sem að ég náði að rölta með hinum og þessum túristahópum og fékk því fría tilsögn um sögu Grikkja. Það er allveg magnað hvað þessir fornleifafræðingar hafa afrekað á þessum hóli því að meirihlutinn af þessu öllu er púslað saman úr óendanlega mörgum bútum. You have to see it to believe it!
Um kvöldið hitti ég svo loks alla hina IAESTE nemana sem eru í Aþenu þar sem við fórum út að borða á traditional grískan veitingastað. Þar smakkaði ég í fyrsta skiptið kolkrabba, smokkfisk og að sjálfsögðu OUZO!
Það finnst öllum rosalega fyndið þegar ég segist heita Raggi því að það er tyrkneskur drykkur sem heitir Rakí og því vilja allir meina að heiti eftir þessum gríðarlega áfenga drykk >50% :-) Ég kvarta ekki!
Eftir þessa ferð fórum við á rónafyllerí á Mavili square þar sem allir háskólanemar hittast næstum öll kvöld og drekka ódýran bjór sem fæst í næsta Kiosk! Virkilega kammó stemning! En skv. bæði Nikos og Dimitris er mun meira um fólk þarna um mitt sumarið svo að ég hef ekki séð neitt yet!
Mikið er nú gaman að skrifa um svona marga daga í einu! :)
� gær, sunnudag, fór ég ásamt hinum IAESTE gaurunum, Lauri frá Finnlandi, Florean frá Sviss, Guillame frá Frakklandi, Fillipé frá Tyrklandi ásamt Ryan á Voula-ströndina sem er staðsett rétt fyrir utan miðbæ Aþenu. Þessi ferð kostaði heilar 90 kr með rútu fram og tilbaka! :) Núna leið mér eins og ég væri kominn til sólarlanda því að ég lá í sólinni, synti í sjónum og hafði það basicly bara skide godt! :) Það kom mér allveg ótrúlega á óvart hve hrein þessi strönd var þó svo að hún sé staðsett svo nærri miðbænum en þarna var múgur og margmenni að baða sig í sólinni. Reyndar sagði Gregoris í vinnunni mér í dag að þessi strönd væri ekki talin neitt rosalega hrein af Grískum eyjabúum en þetta var allveg nógu hreint fyrir mig.
Um kvöldið hitti ég svo 2 IAESTE til viðbótar en það voru þeir Bjorn og Sven sem koma þótt ótrúlegt sé satt, frá Þýskalandi!!!!!!! Við fórum allir saman út að éta og nutum sunnudagskvölds í Aþenu eins og sönnum útlendingum sæmdi!
� dag hef ég verið að gera hin og þessi verkefni fyrir Elxis og ég er ekki frá því að ég eigi eftir að læra heilmikið gagnlegt hérna hjá þeim enda eru allir rosalega vingjarnlegir við mig. Ég hélt því fram áður en ég fór út að ég myndi þjóna þeim tilgangi að vera blómapottur en ég er meira svona eins og kaffivél. Er notaður ágætlega mikið! :)
Ég var að fatta að ég gleymdi þýðingu dagsins seinast! :(
Þá er það bara tvöfaldur skammtur núna! :)
Þýðing dagsins:
Yamas = Skál!!!! (að sjálfsögðu lærði ég þetta um helgina :-) )
Ola kala = allt í góðu ( þeir haldi því fram að o.k. sé stytting á þessu! )
Efharisto = Takk fyrir!
Parakalo = það var lítið
Kali orexi = verði þér að góðu!
Yamoto = Andskotinn!

Læt þetta duga í bili !


posted by Ragnar  # 7:53 f.h.

Archives

05/01/2003 - 06/01/2003   06/01/2003 - 07/01/2003   07/01/2003 - 08/01/2003  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?