<$BlogRSDUrl$>

Raggi hinn Griski

Heimasida um ferd mina til Grikklands sumarid 2003

miðvikudagur, maí 28, 2003

Þriðji dagurinn í höfn og ég er enn á lífi! :)
Er í helvítis basli að laga þennan hrikalega link af heimasíðunni minni! Herðubreið móðurtölvan í skólanum er ekki að leyfa mér að tengjast frá neinu internetcafé, sem er ekki nógu cool! En það verður að hafa það! Annars er ég búinn að vera að rölta um Aþenu í allt kvöld og verð að segja að þetta pleis er allveg magnað! Svæðið í kringum Akropólis hæðina er einn stór fornleifauppgröftur og því er alger snilld að labba þarna í gegn. Eini gallinn er að þetta er líka svæðið sem allir túristar eru á og því eru verðin upp úr öllu valdi!
Annars eru nokkrir hlutir sem ég hef tekið eftir sérstaklega hér í Aþenu.
1. Allt ungt fólk ferðast um á móturhjóum, mér líður stundum eins og ég segi kominn í Mad Max myndirnar því að það eru svoooooooo mörg hjól á ferli hérna.
2. Það er allt í rúst hérna útaf ólympíuleikunum! Það er í rauninni verið að taka allt í gegn hérna, endurnýja lestarstöðvar, laga vegi og basicly byggja Aþenu upp frá því ástandi sem hún er/var í!
Það er nokkuð gaman að sjá allt hérna svona ári fyrir ólympíuleikana. Kannski get ég sagt þegar ég horfi á leikana að ári að ég hafi komið e-ð nálægt byggingu á e-u sem ég sé í imbanum hmmmmm???? :)
Annars eru hlutirnir að skýrast í vinnunni, ég get fengið að fara á netið hjá þeim eftir vinnu en í augnablikinu er mér ekki enn treyst inn á netkerfið, of mikið af leyndarmálum þar inni úúúúúúu!!!!! En Panos yfirmaður minn sagði mér að ég gæti fengið aðgang innan viku, sem er mjööööööög Gooooottttt!
Einnig er núna von á fleiri IAESTE krökkum á næstunni, við erum bara 3 eins og er. Ég, Ryan, og Guillame frá Frakklandi sem er allveg týpískur Frakki með hreim dauðans! ;)
Annars ætla ég að láta þetta duga í dag, er ekki búinn að gera neitt af viti svo... :)



posted by Ragnar  # 11:26 f.h.

þriðjudagur, maí 27, 2003

Jæja þá er ég gefinn upp á þessu skítanetcafé sem ég var á í gær. Held ég hafi gert e-ð sem venjulega tekur mig 4 mín að gera á 30 mín. Svo minns fór að leita og ég fann þetta fína ódýra kaffhús með adsl fimm mín frá hótelinu mínu sem er by the way ansi dýrt. Við þurfum að borga 7.5 evrur á nótt svo að það fer rúmlega helmingur launa minna í þetta helvíti svo ég þarf að byrja að spara! ;(
Annars er það fáranlegt verð því verðum 3 í herberginu 16 júní og þá fer leigan á þessu 2 manna herbergi í 675 evrur á mán sem er eins og ágætis 90 fm íbúð í Rvk. HMMMMmmmmmmm?????
Annars byrjaði ég officially að vinna í dag, fékk e-a bók um uppsetningu á raf-,síma- og ljósa-kerfum sem ég átti að lesa og síðan fór ég að hjálpa Manulis með e-a spekkabók um hin og þessi ljósastæði sem á að setja upp í IBC (international broadcast service) húsið sem Elxis er aðalráðgjafinn fyrir. Annars sögðu þeir mér að þetta yrði betra á morgun því að þá fengi ég aðgang að tölvu hjá þeim þar sem þeir vissu ekki af því að ég átti laptop. Manulis þarf aftur á móti að bíða eftir tölvunum 2 sem þeir pöntuðu handa okkur. Ég vildi samt óska þess að ég væri búinn með rafvirkjann akkúrat núna því að basic vinnan sem allir eru í þarna úti byggist á að teikna í Autocad sem ég hef aldrei gert og þarf því að læra frá skratz. Maggi! Þú værir helvíti góður hérna úti held ég! :-) Annars eru allir heavy næs og því hef ég engar áhyggjur, væri samt til í að vera búinn með raforkukerfi!
Það var reyndar dálítið merkilegt veður í dag því það rigndi næstum í allan dag sem er MJÖG óvenjulega á sumrin í Aþenu, að sögn heimamanna. En ég var inni á skrifstofu í allan dag svo ég sá þetta varla :)
Þýðing dagsins: Ya!=Hæ, Ya!=Bæ :=)
posted by Ragnar  # 10:29 f.h.

mánudagur, maí 26, 2003

26 maí
� dag fór ég í vinnuna hálftíma á eftir Ryan :)
Ég var enga stund að finna Elxis aftur enda ekki langt að fara. Ég var dálítið hræddur við hverju ég átti að búast en þar sem ég var mættur u.þ.b. tíu mín of snemma var mér hleypt inn af gömlum starfsmanni þarna sem talaði eiginlega enga ensku og vissi ekkert af komu minni. Nú leist mínum ekkert á blikuna, en eftir augnablik tók gaur af nafni Michael á móti mér og sagði mér að hafa engar áhyggjur þetta væri allt under control og ég gæti andað léttar. Ég labbaði um húsið sem er 3 hæðir og kynntist öllum sem vinna þarna, þaraf 3 sem heita Dimitris sem setur höfðatölu af Dimitris mönnum sem ég þekki eftir 2 daga í Aþenu upp í 5. Allveg hreint ótrúleg fjölbreytni í gangi hérna!
Allaveganna er fyrirtækið svakalega fínt, góð loftræsting og alles, fólkið rosalega kammó og ég get ekki sagt annað en að þetta eigi eftir að vera skemmtilegur tími framundan. Það munaði reyndar rosalega miklu að Nikiforis, sem er bossinn minn, sagði mér að þeir vissu vel að ég þyrfti tíma til að læra á hvernig hlutirnir gengu fyrir sig hjá þeim og að þetta yrði án efa mikil og góð reynsla sem ég myndi fá út úr þessu. CV CV CV CV CV CV ! ;) Það versta við Elxis þó er sú staðreynd að ég verð ekki með tölvu og líklegast kemst ég ekki á internetið hjá þeim svo þetta blogg mitt verður að byrja í tölvunni minni áður en á internetið kemur. Það eru reyndar nokkur netcafé staðsett nærri Elxis sem ég gæti skroppið á að blogga.
Þar sem að það er gaur(grískur) frá IAESTE Athens að vinna með mér var ég búinn um hádegi í vinnunni, þar sem ég þurfti að ná mér í student identity card frá IAESTE. Þetta kort veitir mér helmingsafslátt í allar neðanjarðarlestir, strætó og ferjur. Þetta er e-r mesta snilldin við Aþenu en með þessu korti þar ég að borga 0.20 evrur fyrir eina ferð í strætó. Ef einungis málin væru svona í Reykjvík. J u.þ.b. 20 kall í strætó í stað 200 kalls. Enda eru allir í strætó hérna, aldraðir sem ungir.
Ég er líka kominn með nýtt númer frá Vodafone Greece sem er +306946825684.
Held allveg örugglega að það sé hægt að senda mér sms og allan pakkann.
Væri nú ekki betra ef OgVodafone héti Vodafone �sland???????
Ég hef fundið internet café sem er 18 skref frá hótelinu sem er bara nokkuð ódýrt og er planið að misnota það eins mikið og hægt verður :)
hasta la manana.

Þýðing dagsins: Elxis = Attraction ( physical and mental), get ekki þýtt þetta á ísl. merkingin myndi tapast á leiðinni.

posted by Ragnar  # 12:17 e.h.
25 maí
Jæja þá er fyrsti dagurinn í Grikklandi á enda.
Ég vaknaði allt of snemma í Danmörku og yfirgaf Elínu frænku, Örn Inga og þeirra gullfallega barn eftir helvíti gott Eurovision djamm
Eftir ótrúlega svæfandi og þægilegt flug með Snowflake var ég mættur í Grikkland og höfuðborgin Aþena beið mín. � Syntagma torgi beið mín IAESTE fulltrúinn minn sem er alger snillingur að nafni Nikos. Við fórum síðan á hótelið mitt þar sem ég hitti Ryan herbergisfélgann minn. Hann er nemi í byggingarverkfræði við Minnesota háskólann. Við fórum síðan þrír að kíkja á verðandi vinnustaði okkar,byrjuðum á því að tjékka á vinnunni minni sem var heppilega nálægt hótelinu eða 2 mín strætóferð beina leið frá hótelinu, alger snilld!!!! Húsið sem Elxis var í er þvílíkt flott og ég hlakka til
að kíkja á þetta á morgun, veit samt ekkert hvað bíður mín svo að ég er með smá hnút í maganum.
Nú fórum við að tjékka á vinnunni hans Ryan sem er í Olympic center í norður-hluta Aþenu hjá BUNG gmbh, sem er þýskt ráðgjafarfyrirtæki. Hann var ekki eins heppinn og ég en þar sem öll Aþena er í endurnýjun var lestastöðin næst vinnunni hans
lokuð og því þurftum við að labba í hálftíma til að finna vinnuna hans. Þetta þarf greyið að gera á hverjum degi svo að ég er kominn með fína vekjaraklukku! :)
Eftir þennan ansi langa göngutúr fram og tilbaka fórum við svo að fá okkur kaffi við Akrapólishæðina og þvílík snilld! Ótrúlega nice torg við þennan heimsfræga stað sem er krökkt af litlum og stórum kaffihúsum sem selja náttúrulega kalt kaffi! Þar smakkaði ég í fyrsta skiptið Freppe sem er basicly nescafé hrisst með vatni, grófum sykri, klökum og mjólk.Mjög gott!
En svo gerði ég þann ótrúlega hlut um kvöldið að mæta á e-a kristna samkomu þar sem vinir Ryan's voru að spila.Ryan er nefnilega rammkristinn, það háir honum samt ekkert ,fínn gaur fyrir því. Ekki er ég nú kristinn maður en þetta var allt í lagi þó svo að ég skildi ekki baun í bala í neinu, enda allt á grísku sem sagt var :)
Annars get ég ekki beðið eftir morgundeginum og vinnunni sem honum fylgir svo ég kveð að sinni.
Þýðing dagsins: Kalimera = góðan daginn, Kalispera = góða kvöldið

posted by Ragnar  # 12:12 e.h.

Archives

05/01/2003 - 06/01/2003   06/01/2003 - 07/01/2003   07/01/2003 - 08/01/2003  

This page is powered by Blogger. Isn't yours?